Adidas Performance Ab Wheel, kviðhjól

4.790 kr.

Adidas Performance Ab Wheel bætir nýrri vídd við kviðæfingar og hjálpar þér að byggja upp styrk og stöðugleika með einfaldri en áhrifaríkri hreyfingu. Með rúllunni vinnur þú í kviðvöðvum, síðum og mjóbaki þegar þú rennur fram, en efra bak og axlir taka vel við þegar þú dregur þig aftur í upphafsstöðu.

Tveggja hjóla hönnunin býður upp á stillingu sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum, þannig að rúllan heldur áfram að ögra þér eftir því sem styrkurinn eykst. Hægt er að hafa hjólin lengra í sundur fyrir meiri stöðugleika fyrir byrjendur eða setja þau nær hvort öðru fyrir erfiðari æfingu og meiri áskorun.

Gúmmíhjól með góðu gripi tryggja öruggari notkun á öllum æfingaflötum og TPR-handföng veita betra grip og meiri þægindi í hverri endurtekningu.

Rúllan er létt, einföld í samsetningu og auðvelt að taka í sundur, þannig að hún pakkast auðveldlega og er þægileg í geymslu eða ferðalögum. Endingargóð hönnun tryggir að hún þolir mikla notkun og ótal árangursríkar endurtekningar.

  • Virkar á alla kviðvöða, bak og axlir til að byggja upp meiri styrk og stöðugleika
  • Tveggja hjóla hönnun með gúmmígripi fyrir gott grip og mjúkar, stöðugar rúlluhreyfingar
  • Stillingar fyrir bæði byrjendur, lengra komna og allt þar á milli. Stillingar sem gera þér kleift að þróa æfingarnar áfram
  • Ergónómísk TPR-handföng fyrir aukin þægindi og betra grip
  • Létt, fyrirferðarlítil og fljótleg í samsetningu, gott að geyma, gott að nota, frábært í ferðalög

Á lager

Bæta á óskalista
Bæta á óskalista
Vörunúmer: ADAC-11407 Flokkar: , , ,