Simona Vareikaitė

Hver er þín aðal íþróttagrein/greinar?

Ég er aðallega að æfa í Ultraform (úthald, styrkur, Hyrox) og er svo að hlaupa með því, tek þátt aðallega í utanvegahlaupum. 

Hvenær byrjaðir þú að æfa þína íþrótt og hver var fyrsta keppnin sem þú tókst þátt í?

Ég byrjaði að æfa í BootCamp árið 2012 og byrjaði minn hlaupaferil á 5km í Víðavagslaupi ÍR 2014.

Hvað hefur verið stærsta áskorunin á ferlinum hingað til?

Ég myndi segja 101km CCC hlaupið by UTMB. 

Hvernig hefur íþróttin mótað þig sem manneskju? 

Íþróttin hefur mótað mig með því að kenna mér aga, þrautseigju og að gefast ekki upp. Hún hefur kennt mér að bæði sigrar og áskoranir eru hluti af ferðalaginu og að maður verður sterkari með hverju skrefi. 

Hvað hvetur þig áfram á erfiðum dögum?

Markmiðin mín; að minna mig á af hverju ég er að gera það sem ég er að gera. Jafnvel lítil skref færa mig nær markmiðinu. Fólkið mitt og vera góð fyrirmynd fyrir dóttur mína. 

Hefur þú einhverja skemmtilega hjátrú eða rútínu fyrir keppni?

Mér finnst gott að undirbúa mig á svipaðan hátt í hvert skipti. Einblíni aðallega á að fá góðan nætursvefn 2 dögum fyrir keppni (maður sefur oft illa daginn fyrir). Deginum áður raða ég fötum, næringu og öðru sem ég þarf fyrir keppnina. Það að fara vel yfir allt hjálpar mér að komast í rétta gírinn. 

Hver er þín fyrirmynd í íþróttum og af hverju?

Þær eru svo margar, þekki svo marga ótrúlega einstaklinga sem allir gefa mér eitthvað til þess að læra af. 

Ef þú gætir gefið yngri útgáfunni af þér eitt ráð, hvað væri það?

Njóta þess að æfa, setja sér markmið og sigra áskoranir án þess að vera með of mikla pressu.

Hvað lærdóm hefur þú fengið frá keppni sem hefur gengið illa?

Keppnir sem ganga illa hafa oft kennt mér mest. Þær minna mig á að íþróttir snúast ekki bara um árangur heldur líka um þolinmæði og að hlusta á líkamann. Ég hef lært að stundum þarf maður að hægja á sér, endurmeta hlutina og koma sterkari til baka. Slíkar keppnir kenna manni líka að hvert hlaup, gott eða slæmt, er hluti af ferðalaginu sem gerir mann betri. 

Hverju ertu stoltust af í þinni íþróttaiðkun?

Er stoltust af að vera manneskjan sem ég er í dag það að geta tekið þátt í nánast hvaða vegalengd sem er 5-100km er ekki sjálfgefið og ég er búin að vinna hart að þessu. 

Hvaða orð eða setningu segir þú þér til að hvetja þig áfram síðustu metrana/mínúturnar?

Lítið eftir  — þú getur þetta. Hefur gert þetta oft áður! 

Hver er draumakeppnin í framtíðinni?

Ekki einhver ein ákveðin  — þarf að fara að finna mér slíka keppni til að dreyma um og stefna á. Klárlega eitthvað erlendis.

Hver eru þín helstu markmið næstu 12 mánuði? 

Verða sterkari og hraðari. Hafa gaman af því að keppa. Er ekki beint með markmið í ákveðnum hlaupum en er að fara í Hyrox keppni sem væri gaman að ná PB í.

Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að æfa?

Eyði tíma með fjölskyldunni og vinum.

Uppáhalds ON skór?

Daglegir æfingaskór: On Cloudnova X

Skór fyrir tempóæfingar: Cloudmonster3 Hyper

Utanvegaskór: CloudUltra Pro

29.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
38.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
44.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Uppáhalds ON flíkur/búnaður?

On Climate Zip Hoodie 

Hlaupavestið frá ON 

Trail Breaker jakkinn 

Original price was: 27.990 kr..Current price is: 16.794 kr..
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
22.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
35.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Framundan hjá Simonu:

Hægt er að opna þá viðburði sem komnir eru inn til að opna þá í dagatali og fá áminningu