Sigurjón Ernir Sturluson
Hver er þín aðal íþróttagrein?
Ég er utanvegahlaupari sem er þó ansi sterkur í keppnum þar sem blandað er saman útahaldi og styrk líkt og í Hyrox.
Hvenær byrjaðir þú að æfa þína íþrótt og hver var fyrsta keppnin sem þú tókst þátt í?
Ég keppti í 55 km Laugarvegshlaupinu 2011 og kláraði mig gjörsamlega þar en eftir það hef ég lítið litið til baka og bara haldið áfram að bæta mig í hlaupum.
Hvað hefur verið stærsta áskorunin á ferlinum hingað til?
Ég hugsa að TDS (145 km með 9.250m hækkun) sitji eftst á lista sem er inní UTMB hlauparöðinni í Frakklandi.
Hvernig hefur íþróttin mótað þig sem manneskju?
Hún hefur veitt mér ótrúlegan andlegan styrk og breytt mikið minni sýn á lífið og hvernig ég forgangsraða mínu lífi í dag.
Hvað hvetur þig áfram á erfiðum dögum?
Það er einhver sem hefur það mun erfiðara en ég og hard times, makes strong men.
Hefur þú einhverja skemmtilega hjátrú eða rútínu fyrir keppni?
Ég fer í gegnum brautina í huganum fyrir svefn mörgum sinnum áður en ég keppi og fer í gegnum útfærslu, ákefð, næringu og allt sem getur orðið á vegi mínum.
Hver er þín fyrirmynd í íþróttum og af hverju?
Ég hef alltaf horft mikið upp til Kílian Jornet og ég horfi einnig mikið upp til fólks sem er yfir höfuð að stíga vel út fyrir þægindarammann. Þá einstaklinga sé ég oft í UltraForm stöðinni minni, jafnt sem hlaupum og hlaupafjarþjálfun.
Ef þú gætir gefið yngri útgáfunni af þér eitt ráð, hvað væri það?
Þinn mesti og öflugasti keppinautur ert þú sjálfur/sjálf, eigin bætinar segja okkur mest um framfarir og árangur í stað þess að bera okkur of mikið saman við aðra.
Hvaða lærdóm hefur þú fengið frá keppni sem hefur gengið illa?
Lífið er upp og niður og þú getur verið jákvæður í erfiðum/óþæilegum aðstæðum og oft náð að snúa erfiðleikum og vonbrigðum yfir í sæmilega góða upplifun og jafnvel gott hlaup að hluta til. Við lærum á því að gera mistök og lenda á veggjum og það er hluti af þroskaferli íþróttamannsins og hluti af því sem gerist við að taka sénsa/áhættur.
Af hverju ertu stoltust af í þinni íþróttaiðkun?
Þegar stórt er spurt ... Svarið er sennilega það sem mér hefur tekist að byggja upp í dag (UltraForm stöðvarnar og stór, flott utanvegahlaup) og alla sem ég hef náð að aðstoða gegnum mína vegferð.
Hvaða orð eða setningu segir þú þér til að hvetja þig áfram síðustu metranna/mínúturnar?
Sársauki er alltaf tímabundið ástand, kláraðu með stæl og svo máttu slaka á 😀
Hver er draumakeppnin í framtíðinni?
Mig langar að klára UTMB hlaupið (170 km og 10.000m hækkun) og eins er 110 km Blue Trail Tenerife ofarlega á lista.
Hver eru þín helstu markmið næstu 12 mánuði?
EM í fjallahlaupum er á dagskrá í júní og svo langar mig að bæta mig sem hlaupari og ná árangri í hlaupum sem hækka mitt ITRA skor.
Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að æfa?
Ég er mikil saunu og kulda maður, ég hugsa mikið um að næra mig rétt, ég legg mig daglega, ég vinn í þjálfun og Ultraform stöðvunum og gera allskonar hluti með minni fjölskyldu.
Uppáhalds ON skór?
Uppáhalds On skór í allar mínar hlaupaæfingar í dag er utanvegaskórinn Cloud UltraPro.
Ég nota svo Strike í keppnirnar í götu.
Uppáhalds ON flíkur?
Performance tight,
On Core jacket
On Performace tank og Performace stuttermabolur
Framundan hjá Sigurjóni:
Hægt er að opna viðburði þegar þeir koma inn til að opna þá í dagatali og fá áminningu