Hlynur Andrésson

Hver er þín aðal íþróttagrein?

Ég er hlaupari sem einbeiti mér að götuhlaupum, þá sérstaklega maraþoni.

Hvenær byrjaðir þú að æfa þína íþrótt og hver var fyrsta keppnin sem þú tókst þátt í?

Ég byrjaði haustið 2011 að hlaupa út í Bandaríkjunum og mín fyrsta keppni var 5km götuhlaup þar sem ég hljóp 19:52.

Hvað hefur verið stærsta áskorunin á ferlinum hingað til?

Að komast aftur á góðan stað og í mitt besta form eftir meiðsli.

Hvernig hefur íþróttin mótað þig sem manneskju?

Íþróttin hefur kennt mér að vinna og agi samsvarar árangri, það er eitthvað sem ég hef getað fært yfir á öll önnur svið með mér í lífinu.

Hvað hvetur þig áfram á erfiðum dögum?

Sú staðreynd að ég er verulega lánsamur að geta gert það sem ég elska alla daga, hvort sem það sé erfitt eða auðvelt.

Hefur þú einhverja skemmtilega hjátrú eða rútínu fyrir keppni?

Nei, ekkert svoleiðis, aðallega vegna þess að þá mun mér ekki líða vel ef sú rútína gengur af einhverjum ástæðum ekki upp. En mér finnst hinsvegar mikilvægt að jogga aðeins á morgnanna fyrir keppni og drekka kaffi með morgunmatnum.

Hver er þín fyrirmynd í íþróttum og af hverju?

Allir einstaklingar sem eru að vinna fullt starf, eiga fjölskyldu, en finna samt tíma yfir daginn til þess að koma inn æfingum, það eru ofurhetjur að mínu mati og veita mér mikinn innblástur.

Ef þú gætir gefið yngri útgáfunni af þér eitt ráð, hvað væri það?

Treystu sjálfum þér, þú þarft ekki alltaf að gera eins mikið og þú getur, og einbeittu þér að því að vera stöðugur í staðinn fyrir að vera fullkominn.

Hvaða lærdóm hefur þú fengið frá keppni sem hefur gengið illa?

Aðallega það sem ég varð að aðlaga í æfingum til þess að koma í veg fyrir að ég myndi standa mig illa aftur.

Af hverju ertu stoltastur af í þinni íþróttaiðkun?

Að hafa komist lengra en nokkur annar sem kom á undan mér.

Hvaða orð eða setningu segir þú þér til að hvetja þig áfram síðustu metranna/mínúturnar?

Hlauptu þennan kílómeter eins vel og þú mögulega getur.

Hver er draumakeppnin í framtíðinni?

Maraþonið á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028.

Hver eru þín helstu markmið næstu 12 mánuði?

Öðlast þáttökuréttindi fyrir EM í frjálsum í Birmingham í ágúst, bæta tímana mína í 10km, hálfu- og heilu maraþoni, sem og að bæta tímann minn í Puffin Run.

Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að æfa?

Ég vinn á tilraunastofu í Hollandi og þjálfa hlaupara á Íslandi en í mínum frítíma finnst mér gaman að lesa, horfa á bíómyndir og eiga samstund með vinum.

Hvað er óvenjulegasta eða skrítnasta ráð sem þú hefur fengið frá öðrum?

Þann heiður á sennilega fyrrverandi þjálfari minn þegar ég var í háskóla í Bandaríkjunum þegar hann sagði mér að „til þess að hlaupa hratt, þá verður þú að hlaupa hratt“, en það hljómar bæði mjög einfalt og augljóst en einhvern veginn á sama tíma alveg hárrétt á sama tíma.

Uppáhalds ON skór?

Daglegir æfingaskór: Cloudsurfer

Skór fyrir tempóæfingar: Cloudboom Max

Keppnisskór: Cloudboom Strike

29.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
38.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
44.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Uppáhalds ON flíkur?

ON performance tank hlýrabolirnir fyrir æfingar eru frábærir fyrir brautaræfingar.

ON vatnsheldi regnjakkinn er ómissandi hérna í Hollandi

ON performance tights eru mínar uppáhalds hlaupabuxur allra tíma.

11.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
49.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
12.990 kr.
Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Framundan hjá Hlyni:

Hægt er að opna viðburði þegar þeir koma inn til að opna þá í dagatali og fá áminningu