Vörunúmer | ON4499543M |
Nýju Cloudultra utanvegaskórnir frá On fá þig til að líða eins og þú sért á skýjum og getir hlaupið endalaust. Skórnir eru bæði mjúkir og léttir en veita jafnframt góðan stuðning. Skórnir unnu til verðlauna hjá ISPO í flokknum „Trail running“ Öll hönnun á skónum stefnir að sama markmiði: Að gera utanvegahlaupin þín eins þægileg og mögulegt er.
30 daga skilaréttur á öllum On skóm
Við bjóðum upp á 30 daga skilarétt á alla On skó. Þú hefur 30 daga til þess að prófa skóna og ef þér líkar ekki skórnir af einhverjum ástæðum, þá máttu skila þeim og fá aðra skó við hæfi, inneignarnótu eða endurgreitt.
Skilað & skipt
Ef þú kemst ekki til okkar þá sendir þú okkur skóna til baka og við sendum þér nýja, þér að kostnaðarlausu. Sjá upplýsingar um hvert á að senda skóna hér.
Hentar best fyrir:
Utanvega skór fyrir millivegalengd og lengri hlaup. Henta til æfinga og keppni.
CloudTec® tæknin á skósólanum virka eins og ský og gefa frábæra dempun án þess að missa hraða. Speedboard™ jafnvægisbrettið hjálpar þér að stilla þig betur af í hlaupunum svo þú lendir rétt.
Skóstærðir á On skóm eru mjög líkar öðrum skótegundum og í flestum tilfellum tekur þú sömu stærð og í núverandi skóm. Það má kannski segja að On skór mátast heldur minni en stærri og einnig getur verið ráðlagt að taka hlaupaskó í hálfu númeri stærra en í hefðbundnum götuskóm.
Ef þú vilt bera saman við önnur hlaupaskómerki, vinsamlegast smelltu á þessar leiðbeiningar hér að neðan til að finna réttu stærðina.