Hlynur Andrésson keppir á EM í maraþoni í haust!
Íslenski hlauparinn Hlynur Andrésson hefur tryggt sér þátttökurétt á EM í frjálsum íþróttum sem fer fram í Birmingham í Bretlandi 16. ágúst næstkomandi. Hann situr í 49. sæti af 60 á Evrópulistanum og er þar með einn þeirra sem fá að taka þátt í maraþonhlaupinu á Evrópumeistaramótinu.
Þátttökurétturinn byggir á árangri Hlyns úr tveimur hlaupum fyrr á árinu:
2:15:30 í maraþoni, sem er annar besti tími Íslendings frá upphafi og
1:03:09 í hálfu maraþoni, sem er þriðji besti tími Íslendings frá upphafi.
Árangur Hlyns í þessu stóru hlaupum er magnaður og við erum stolt af okkar manni. Við erum einnig ánægð að sjá hvað fatnaður og skór sem Hlynur notar frá Sportvörum hefur reynst vel í undirbúningi hans og keppnum undanfarin ár.
Við hlökkum til að sjá Hlyn á startlínunni í Birmingham að keppa fyrir Íslands hönd á stórmóti og það í vörum frá okkur.
Hlynur er nú í háfjallabúðum í Font Romeu, Frakklandi, þar sem hann undirbýr sig fyrir mótið í þrjár vikur.